Hægðartregða

fibrebond_web Ótrúlegt hvað Mogginn er duglegur við að halda þjóðinni upplýstri um hægðatregðu þessa vesalings manns. Það alveg nauðsynlegt að gæta vel að hafa hægðirnar í lagi og Fiberbond töflurnar er frábær leið til þess.
Töflunum er svo best að skola niður með AloeVera djusnum sem róar órólegan maga.
Meira um þessar frábæru vörur á www.aukakilo.net

Breyttur lífsstíll

Um mig

 

Ég heiti Kjartan Sæmundsson og er 51 árs húsasmíðameistari og grunnskólakennari. Mestan hluta minnar starfsæfi hef ég unnið líkamlega vinnu og haldist í kjörþyngd. Fyrir sjö árum síðan breytti ég algerlega um lífsstíl, hætti að reykja, drekka áfengi, settist á skólabekk og hætti að hreyfa mig. Ég breytti einnig um starfsvettvang og gerðist grunnskólakennari. Aukakílóin létu ekki á sér standa og ég fór úr 87 kílóum í 112 kíló þegar ég var þyngstur. Var kominn með stærðarinnar ístru, brjóst sem ég var ekki stoltur af og gat ekki setið með fæturna í kross, vegna offitu á lærum. Flest öll fötin mín voru orðin of lítil á mig. Ég var farinn að nota stærðir XXXL og það  var skelfilegt að fara í búðir og geta ekki keypt sér flott föt vegna þess að þau voru ekki til í svo stórum stærðum. Mér leið ekki vel í skrokknum mínum. Hafði nánast óbeit á sjálfum mér og var mjög ósáttur við útlit mitt.

 

Það kom fyrir að ég fór að gera eitthvað í málunum. Keypti mér kort í ræktinni, breytti mataræðinu og fleira. Þetta gekk í einhvern tíma en árangurinn lét alltat á sér standa. Mér fannst þetta leiðinlegt og ég sá engan árangur af þessu puði mínu. Ég er einfaldlega ekki líkamsræktarmaður.

 

Í gegnum tíðina hef ég rekist á fólk sem hefur viljað selja mér Herbalife. Alltaf vísaði ég þessu fólki á bug vegna þess að ég hafði ekki trú á fyrirbærinu og var uppfullur af fordómum gagnvart því.

 

Í vetur áskotnaðist mér fyrir tilviljun Herbalife startpakki og ég ákvað að prófa vöruna.

 

Hvernig ég var > > > >


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband